LANDSLAGSARKITEKTÚR

Í SKJÓLI TRJÁNNA

Í skjóli hávaxinna trjáa, í gróðursælli laut í Kópavogi, mótast friðsæll einkagarður þar sem náttúra og hönnun mætast.

Áhersla er lögð á að varðveita náttúrulegan karakter staðarins og skapa skjólgott útirými þar sem gróður og rýmismyndun vinna saman. Efnisvalið er einfalt og tímalaust, með áherslu á gæði, endingu og fallega heild.