UM BARR

Hönnun sem tekur mið af staðnum, fólkinu og því hvernig rými eru notuð.

BARR er hönnunarstofa með áherslu á landslag, útirými og heildstæða nálgun á byggt umhverfi. Við vinnum frá fyrstu hugmynd að útfærslu og leggjum áherslu á að skapa rými sem eru bæði falleg, notaleg og vel ígrunduð.

Í hverju verkefni er unnið með staðinn sem útgangspunkt — landslag, byggingar, efnisval, gróður og smáatriði eru skoðuð sem ein heild. Markmiðið er að skapa tímalaus rými sem eldast vel og styrkja tengsl fólks við umhverfi sitt.

BARR vinnur með verkefni af ólíkum stærðum, allt frá einkalóðum og útirýmum að ferðaþjónustu, fyrirtækjum og stærri þróunarverkefnum.

 Á BAK VIÐ BARR 

BARR var stofnað af Birgittu Ösp Atladóttur, landslagsarkitekt. Hún lauk meistaraprófi í landslagsarkitektúr frá Kaupmannahafnarháskóla og BS gráðu frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Birgitta vinnur með landslagsarkitektúr, lóðahönnun, útirými og heildstæða hönnun umhverfis, frá fyrstu hugmynd að útfærslu. Í verkefnum BARR nær sú nálgun einnig inn fyrir veggi þegar við á, þar sem efnisval, innréttingar og rými eru mótuð í samhengi við arkitektúr og umhverfi.

Samhliða starfi hjá BARR kennir Birgitta landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands. Í vinnunni leggur hún áherslu á vandaða og tímalausa hönnun, skýra efnisnotkun og sterk tengsl milli bygginga, landslags og fólks.