INNANHÚSSHÖNNUN
MILLI LJÓSS OG SKUGGA
Í nýbyggðri íbúð á Kársnesi, með útsýni yfir hafið, var unnið að því að móta heildstæða og fágaða ásýnd heimilisins.
Byggt var á fyrirliggjandi innréttingum og hönnun sem var þróuð áfram með breytingum, vönduðu efnisvali og sérsmíðuðum lausnum úr svartri eik og náttúrusteini.
Lýsing gegnir veigamiklu hlutverki í hönnuninni, þar sem vandlega valdir ljósagjafar draga fram áferð efnanna, móta stemningu og skapa samspil ljóss og skugga. Áhersla var lögð á hlýju, jafnvægi og smáatriði sem tengja rýmin saman í tímalausa og fágaða heild.