LANDSLAGSARKITEKTÚR

ÚT Í VÍÐÁTTUNA

Heilsárshús í íslenskri sveit þar sem náttúran og víðsýnið eru í aðalhlutverki. Hönnun útisvæða byggir á sterkum tengslum við umhverfið, þar sem harðviður, grágrýti og gróður mynda heildstæða umgjörð um ólík dvalarrými.

Útisvæðin fléttast saman með áherslu á flæði, skjól og upplifun. Gufubað, útieldhús, heitur pottur og kaldur pottur skapa fjölbreytta möguleika til útiveru allt árið um kring. Sérstakt eldstæði, með skírskotun í íslenska langeldinn, myndar samkomustað þar sem eldurinn og víðáttan verða hluti af upplifuninni.

Mörkin milli inni og úti verða óljós þar sem arkitektúr, landslag og innanhússhönnun mynda samfellda heild.

Innanhússhönnun: Berglind Berndsen.

Í MÓTUN

Útirýmin taka smám saman á sig mynd í nánum tengslum við náttúruna og víðsýnið. Harðviður, íslenskt grágrýti og gróður móta ólík dvalarsvæði þar sem efnisval, landmótun og tengingar skapa heildstæða upplifun. Hér má fylgjast með því hvernig hönnunin verður að veruleika og mörkin milli húss og landslags taka á sig mynd.